3. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 26. september 2023 kl. 09:10


Mætt:

Teitur Björn Einarsson (TBE) formaður, kl. 09:10
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 09:10
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) 2. varaformaður, kl. 09:14
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:10
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 09:10
Elva Dögg Sigurðardóttir (EDS), kl. 09:10
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:10
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:10

Nefndarritari: Þuríður Benediktsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerð 2. fundar var samþykkt.

2) 3. mál - réttlát græn umskipti Kl. 09:11
Umsagnarbeiðnir voru staðfestar með tveggja vikna umsagnarfresti og ákveðið var að Oddný G. Harðardóttir verði framsögumaður málsins.

3) 98. mál - staðgreiðsla við innborgun í lífeyrissjóði Kl. 09:12
Umsagnarbeiðnir voru staðfestar með tveggja vikna umsagnarfresti og ákveðið var að Ásthildur Lóa Þórsdóttir verði framsögumaður málsins.

4) 104. mál - stimpilgjald Kl. 09:13
Umsagnarbeiðnir voru staðfestar með tveggja vikna umsagnarfresti og ákveðið var að Diljá Mist Einarsdóttir verði framsögumaður málsins.

5) Starfið framundan Kl. 09:14
Nefndin ræddi starfið framundan.

6) 2. mál - breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024 Kl. 09:23
Nefndin samþykkti að óska eftir minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, sbr. 51. gr. þingskapa.

7) Önnur mál Kl. 09:25
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:25